Færsluflokkur: Bloggar

Sumarfrí frí frí!

Er á 2. degi sumarfrís. Almenn leti hefur hrjáð okkur. Tókum rúnt um sunnanverða Vestfirði, á síðasta sunnudag. Keyrðum á Flókalund. Tókum stopp þar í hádegismat. Brunuðum svo í þokuna á Patró og Tálknafirði.
Sól og sumarylur hefur einkennt síðustu daga. Ég og Sæunn erum á golfnámskeiði þessa vikuna. Mig dauðlangar samt að fara eitthvað. Helst vildi ég eiga tjaldvagn eða fellihýsi til að bruna með eitthvað út í buskann. Hver vill kaupa með mér svoleiðis? Engin nýtni að eiga þetta einn.  Samt er ég með einhverja útþrá. Hver vill bjóða mér til Köben eða eitthvað? Hvað þá redda mér gistingu þar fyrir 4 manna fjölskyldu?? Er farinn út í sólina á Ísafirði. Matur hjá tengdó og golfnámskeið strax á eftir. Yfir og út!


Wild wild Westfjords

Sá þessar fréttir í morgun þegar við skriðum á fætur. Svakalega er þetta allt saman óraunverulegt. Sérsveitin á þyrlu, lögregluborðar og læti. Eflaust er smá mórall í gangi í dag hjá sumum.  Það er ekki eins og maðurinn hafi dansað upp á borðum og brotið klósettið á Langa Manga. Nei maðurinn hleypti af byssu á eftir konunni sinni. Greinilega tekið æði þessi maður.

 Af okkur er gott að frétta annars. Ég er kominn í stutt sumarfrí. Eigum eftir að ákveða hvað við gerum næstu daga. Dauðlangar að hoppa upp í bíl og úr bænum. Helst myndi ég vilja gera eins og mamma og pabbi, stökkva upp í flugvél og lenda í Köben. Þau ákváðu það með c.a 12 tíma fyrirvara. 
Ég sló garðinn hjá mömmu og pabba í gær og í dag. Kláraði þetta um miðjan daginn í dag. Samt hefur aðeins minnkað hjá þeim grasflötin. Stétt tekin við og svona. Þetta er bara hressandi í góðu veðri.


mbl.is Byssumaður yfirbugaður í Hnífsdal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reyklaus veitingahús 1. júní 2007

Reyklaus_stadur_fra_1.06Þetta verður fínn dagur á Íslandi. Nú get ég andað léttar þegar ég spila á pöbbum landsins. Það er ekkert grín að spila á munnhörpu í reykfylltu lofti, og það fyrir reyklausan manninn. Og maður þarf ekki að strippa þegar maður kemur heim...þvo og viðra fötin sín eftir heimsókn á knæpur landsins.
Held þetta sé svipað stór dagur og þegar bjórinn var leyfður 1. mars 1989. Sama ár og ég fermdist.

 

 

ATH! Þetta hefur alltaf verið reyklaus bloggsíða. Takk fyrir.


mbl.is Reykingabann á skemmtistöðum gæti skilið milli feigs og ófeigs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ostahlaup!

Þetta er íþrótt sem ég gæti hugsað mér að leggja fyrir mig! Ostakapphlaup!
mbl.is Keppt í ostaeltingarleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilislaus

Nú eigum við hvergi heima! Við losuðum íbúðina sem við leigðum, á laugardaginn. Tókum það stærsta á risa snjósleðakerru í 2 ferðum. En ég, pabbi og Hálfdán höfðum farið kvöldið áður líka.  Á laugardaginn fengum við líka hjálp frá Hjalla bróður. Öllu var troðið í bílskúrinn hjá mömmu og pabba.
Við ætluðum að flytja inn á mömmu og pabba í dag. En Kristín systir og fjölskylda frestuðu suðurferð þangað til á morgun, því Eiður Sölvi var orðinn veikur. 
Elma Katrín hefur legið í veikindum síðustu daga. Endalaust kvef og hiti. Þetta hjálpar ekki mikið til. Allir orðnir svolítið þreyttir eftir að hafa verið að pakka niður síðustu daga og tæma. Eigum eitthvað eftir af smádóti í íbúðinni, ásamt á ég eftir að losa sjónvarpið af veggnum. OG svo eru þrif eftir.

Gamall, eldri elstur.

Torfhildur er 4. elsti núlifandi Íslendingurinn. Maður sér hana á tölti hérna um bæinn af og til. Og svo tekur hún þátt í kvennahlaupinu! Það er örugglega gaman að verða gamall ef maður er svona hress. Ef maður er já hress og á góðan gítar, þá held ég sé fínt að verða gamall.
mbl.is Elsti Vestfirðingurinn er 103 ára í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varamaður

Sat stofnfund Miðbæjarsamtaka Ísafjarðar í gær. Endaði þar í stjórn, sem varamaður. Þetta var hressilegur fundur með hressu fólki sem er með rekstur í miðbæ Ísafjarðar. Upp komu ansi skemmtilegar hugmyndir til að lífga upp á bæjarlífið. Best fannst mér að sjá vertana á Langa Manga og þeirra andstæðing í nágrannadeilu, sitja nánast hlið við hlið.
Hægt er að lesa frétt um þennan fund hér


Hergé 100 ára


tintinÞað eru hundrað ár frá fæðingu höfundar Tinna.´
Ég hafði alltaf voðalega gaman af Tinnabókunum. Hvað ætli Tinni eigi samt að vera gamall í bókunum? Hann er alltaf í slagtogi með sífullum skipstjóra, Kolbeini kafteini. Þess á milli er hann með Vandráð prófessor með í eftirdragi, algjöran rugludall. Tinni er svona gaur sem er aldrei við kvenmann kenndur. Og oft vingast hann við útlenska, dökka stráka í bókunum.


mbl.is Hundrað ár frá fæðingu Hergé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sól sól skín á mig

Vaknaði illa sofinn í sól, í morgun. Skoppuðum í leikskólann, ég og Svava Rún. Auðvitað vildi hún fara í pils og pæjubol. Skilaði henni í leikskólann og rölti svo í sól og blíðu í vinnuna.
Átti ágætiskvöld í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn. Sumir voru svolítið á því að horfa á kosningasjónvarpið á staðnum. Þannig að ég skokkaði upp á næstu hæð með græjurnar og fékk í staðinn þvílíka plássið og notalegt umhverfi með málverkasýningu Reynis Torfa á veggjunum.
Keyrði heim örþreyttur og lagðist á koddann rétt fyrir 4.

Já og til að tala um kosningar, þá vann Serbía Júróvision.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband