Færsluflokkur: Bloggar

2008 hér komum við....með strætó

2008 byrjaði harkalega. Ég lagðist í ælupest. Og ældi öllu sem hægt var aðfararnótt 2. jan. Ætla ekki að rifja upp 2007 í þessari færslu. Skaupið var svosem ágætt. Ekki allir sem föttuðu Kalla Bjarna í skaupinu?
Að búa í Ísafjarðarbæ árið 2008 verður örlítið betra. Hef aldrei sagt að það sé slæmt. Frá og með 1. janúar 2008, lækkuðu leikskólagjöldin hjá okkur. Svava fær núna 4 tíma gjaldfrjálsa fyrir hádegi, ásamt því að fæði lækkaði um 10%. Ég fæ það út að í staðinn fyrir að borga 55þús kr með systkinaafslætti borgum við um 40þús kr. Það er eins og afborgun af notuðum smábíl að ég tel.
Frítt verður í strætó fyrir alla.

Allir í strætó!!


Krullupinnar

Var að gramsa í tölvunni minni og fann gamlar upptökur með fyrstu hljómsveitinni minni, Krullupinnar. Þetta hljómar alls ekki vel. En skemmtileg minning. Í þessu bandi var Ég á gítar, Unnar Reynis á bassa og Jón Geir á trommur og söng. Í einu laginu aðstoðaði okkur Gummi Halldórs (Kusi) við söng á fyrsta laginu okkar hehe. Hér til hliðar má heyra smá sýnishorn. Sjá tónlistarspilara.

Jólin koma....jólin koma!!

Sit hér þreyttur eftir strangan dag. Erum að gera góða hluti í vinnunni. Skilst að jólasala sé á blússandi ferð á öllu landinu.
Í dag barst pakki frá forstjóranum. Auðvitað var hann opnaður á staðnum. Í ljós kom kort frá honum og mynd af jólagjöfinni. Skilst að gjafir starfsmanna sé föst í tolli eða eitthvað álíka. En ég var voðalega sáttur við það sem var á myndinni.
Á morgun laugardag erum við með opið til kl 17. Ég ætla að mæta og opna. Fara svo í klippingu hjá Eiríki í víkinni. Svo á sunnudaginn ætla ég að fá að mæta aðeins seinna í vinnuna og fara í skötu til mömmu og pabba. Namm hlakka til.
Verð í fríi á aðfangadag. Gummi ætlar að standa vaktina fyrir mig, þann stutta tíma sem opið er. Enda ætlum við litla fjölskyldan í stórholtinu að halda jólin heima í fyrsta skiptið. Matreiðslan verður í mínum höndum. Ég og Sæunn eru náttúrulega með okkar kröfur til matarins þetta kvöld. Auðvitað viljum við að þetta sé sem líkast frá okkar æskuheimilum. Mér sýnist ég fá frekar frjálsar hendur með kjötið sem verður hamborgararhryggur, en Sæunn hefur sérstakar óskir með sósuna. Ég fæ þá kannski að koma með hugmyndir að meðlætinu. Það verður þá svipað og heima hjá mömmu og pabba.

Hver man ekki eftir Rúdolf með rauða nefið?

En það hafa fæstir heyrt um Adolf með brúna nefið. Hann var alltaf hafður aftast, því hann var alltaf svo lengi að stoppa.
mbl.is Ók á 13 hreindýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru kannski ofmannað á mbl.is?

Ég ræddi þetta við kunningja minn í dag. Við höldum að annað hvort er 10. bekkur í einhverjum grunnskólanum í starfskynningu hjá Mogganum eða þá að það er lítið að gera hjá moggamönnum. Fréttirnar á mbl.is eða visir.is snúast annað hvort um Britney Spears og hennar kúkaklessur, eða þá hvað hinir og þessir bloggarar eru að skrifa um.
mbl.is Ofurbloggari gleymir að minnast á Nell
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karaókíkeppni fyrirtækjanna

Ég skellti mér í karaókíkeppni fyrirtækjanna á Langa Manga. Mætti fyrir hönd Símans, fyrst Stuðmundur vildi ekki taka þátt. Það þurftu allir að velja sér 2 lög. Ég valdi Mrs. Robinson og Lay Lady Lay. Ég hélt lagi og ekki mikið meira. Það voru margir efnilegir þarna. Það voru einhverjir 5 eða 6 sem komust í úrslit. Þar á meðal ég. Það þýðir að ég þarf að mæta á næsta föstudag líka. Þetta var á síðasta föstudag.
Á laugardagskvöldinu var farið á jólahlaðborð með vinnunni. Ótrúlegt en satt þá át ég ekki á mig gat. Ég gat alla vega staðið upp og komist heim.

Þessi mynd hér tók Gummi frændi á síðasta föstudag. Tilþrifin þvílík og andlitið eftir því. Mæli með að fólk komi og fylgist með á næsta föstudag. Góð skemmtun og fólk í stuði.

Svo er ég að spila á laugardaginn á Langa Manga.


Auga fyrir auga?

Það ætti að beita því sama á þá sem bera ábyrgð á þessu og gerðu. Já eða setja þá í ljónagryfjuna.
mbl.is 15 ára stúlka sett í fangaklefa með 20 mönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bróðir Kurts?

buffy_jack_russel_terrierBíddu hvar grafa menn upp svona fréttir?!?!?!
Þeir taka fram tegundina á hundinum. Var hundurinn karlkyns eða kvenkyns? Eins og einhver bloggaði um þessa sömu frétt. Þá á þessi maður sem þeir leita að, eftir að fá þyngri dóm en nauðgari á Íslandi.

Hver getur misþyrmt dýrum svona? Hvað þá svona hundi?


mbl.is Grunaður um að hafa nauðgað hundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mynd af afmælisbarninu

Læt flakka mynd af afmælisbarninu í tilefni dagsins.

c_documents_and_settings_starfsmenn_my_documents_blai_kjarni_saeunn_saeunn_litlaEr ekki frá því að Elma Katrín hafi háralag mömmu sinnar. Sítt að aftan og snöggt í hliðuðnum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband