Nú eru SSSól að koma saman aftur. Skilst þeir ætli að vera með tónleika 18. apríl. Vona að þetta verði svona acoustic tónleikar.
Maður tengir SSSól alltaf við páskana heima á Ísafirði. Þegar Skíðavika var, þá sá maður Helga Bjöss í brúnum leðurbuxum í lopapeysu á skíðum. Hinir meðlimir fylgdu oft með. Svo spiluðu þeir upp á dal, í sól og snjó. Svo voru kannski tónleikar að kvöldi Skírdags. Svo náttúrulega páskaball.
Ætli maður hafi ekki farið oftast á SSSól böll af öllum þessum böndum. Enda skemmtilegast. Prógrammið var oftast svona 80% þeirra efni og svo 20% cover. Gaman að sjá þegar Eyjó gítarleikari tók t.d Should I stay or Should I go?
Maður verður bara að fylgjast með
Athugasemdir
Jú, mikið lifandi ósköp fór maður á tugi dansleikja með þessari hljómsveit. Ferðaðist jafnvel hundruðir kílómetra landshluta á milli, styttri vegalengdir jafnvel á puttanum, labbaði meira að segja næstum alla leið frá Akureyri í Freyvang til þess eins að berja þá augum og eyrum. Alltaf jafngaman að fá svo far til baka í rútunni með þeim og þiggja veitingar. Það endaði jafnvel með ósköpum í einhver skipti.
Eins er myndin af Jakobi falleg, enda maðurinn öðrum fegurri, bassastæðan á fáa sína líka og umhverfið allt hið vinalegasta. Er jafnvel ekki frá því að ég hafi tekið myndina alveg sjálfur.
Ingvar Valgeirsson, 21.3.2007 kl. 22:03
Maður fær lítið ef maður gúgglar þetta blessaða band.
Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 22.3.2007 kl. 11:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.