Færsluflokkur: Bloggar

Kíkti sá og sigraði!

Ákvað að kíkja á Langa Manga í kvöld. Þar var spurningarkeppnin Drekktu betur í gangi. Það eru kannski 2 eða 3 ár síðan ég kíkti síðast á þessa keppni. Og er þetta þá kannski í 2. eða 3. skiptið sem ég tek þátt. Þemað var grínmyndir. Þegar ég mætti 10 mínútum í níu í kvöld, voru nokkrir mættir. Þar á meðal Þór Péturs og Sara, og svo Óli Tryggva. Ég plantaði mér hjá þeim með einn öl. Ég og Óli ákváðum að vera saman í liði. En hann ætlaði helst að skipta mér snarlega út ef einhver sæt stelpa myndi koma inn. Við enduðum með 24 stig í leikslok. Vorum því efstir með Sæla og frú. Þannig að maður þurfti að hlaupa og pissa og skella sér í bráðabana. 3 spurningar voru lagðar fyrir okkur. 1. spurning var: Hver lék Robin Hood í Men in tights. Óli hafði það. Eitt stig. Hver talaði fyrri asnann í Shrek var spurning númer 2. Það vissum við báðir. 3. spurning var: Hvar gerist myndin 51st Date? Ég gat hana. Í verðlaun var kassi af Thule. Og þurfti ég að dröslast með 2 kippur af hálfslíters bjór heim.

Á morgun tek ég flugið norður til Akureyrar. Stefnan er tekin á tónleika með Hjálmum annað kvöld og svo námskeið daginn eftir. Tókst að kynnast aðeins þessum Akureyringum sem vinna hjá Símanum, á árshátíðinni á síðustu helgi. Hresst lið sem er örugglega spenntara fyrir því að djamma með mér og  austfirðingunum heldur en þessu námskeiði.
Byrja á því að fljúga til Reykjavíkur. Þar hitti ég Sæunni, Svövu og Elmu á flugvellinum. Því ég þarf að bíða í klukkutíma eftir næsta flugi.


Gúggl

Hef stundum gúgglað sjálfan mig (farið á google.com og skrifað t.d "denni").  Prufaði nú að skrifa fullt nafn. Fann þá 6 ára gamla frétt frá Símanum (þþíminn eins og Hebbi sagði).
Svona hljómaði þessi frétt:

18.02.2001 | 21:30

Starfsmenn Símans handssama vefþjófa-

Greiðslukortið var ekki á nafni

viðskiptavinar Símans og pakkinn var ekki sendur á heimilisfang hans heldur

á annað heimilisfang.



Haft var uppi á viðskiptavini vefverslunar Símans. Hann kannaðist ekki við

að hafa verslað á vefnum og bjó ekki á því heimilisfangi sem pakkinn var

sendur til. Að því búnu var haft samband við greiðslukortafyrirtækið en þá

kom í ljós að eigandi kortsins hafði ekki sjálfur heimilað úttekt hjá

vefversluninni. Önnur pöntun barst á sama hátt og þegar hér var komið sögu

var lögreglan kölluð til.



Jóhann Snorri Sigurbergsson, aðstoðarverslunarstjóri, ásamt lögreglumönnum

í ómerktum lögreglubíl fór á staðinn til þess að afhenda gervipakka og var

parið þá handtekið. Að sögn lögreglunnar höfðu þau um 700 þúsund upp úr

krafsinu áður en þau náðust. Það kom í ljós að þau höfðu tekið afrifur, sem

viðskiptavinir verslana höfðu ekki hirt um að hirða, og notað þær síðan í

sínum viðskiptum. Þetta ætti að vera áminning til fólks um að taka til

handargangs kvittanir, sem það fær afhent í verslunum og varðveita.

frétt endar;

Ég man eins og þetta hafi gerst í gær. Þetta var svo spennandi. Þetta voru bara smápúkar sem reyndu þetta.
Í staðinn sendi framkvæmdastjórinn mig út að borða með Sæunni, og var nokkuð sáttur.

 

Næsta útkoma eftir að hafa gúgglað mig fullu nafni. Kom þetta:

Íraskir dagar settir á Silfurtorgi á föstudag

Íraskir dagar hefjast á Ísafirði á föstudag. Hátíðin verður sett á Silfurtorgi klukkan 17.30 þegar fánar Íslands og Íraks verða dregnir að húni og þjóðsöngvar landanna leiknir. Um kvöldið verður írösk stemmning allsráðandi á kaffihúsinu Langa Manga þar sem boðið verður m.a. upp á íraska kjötsúpu. Að kvöldi laugardags klukkan 20 hefst írösk matarveisla í Edinborgarhúsinu þar sem farið verður yfir sögu landsins og boðið upp á framandi rétti. „Flest bæjarfélög halda svona svipaðar hátíðir, írska daga, danska daga og færeyska daga svo eitthvað sé nefnt. Það voru bara flest lönd frátekin þannig að Írak varð fyrir valinu. Enda Írak mikið í umræðunni. Við vildum því vekja athygli á menningu og þjóð Íraks“, segir Steingrímur Rúnar Guðmundsson, einn skipuleggjenda hátíðarinnar.

Það sem maður er gabbaður út í. Þessi hátíð var blásin af vegna lélegrar þátttöku.
Ef maður gúgglar svo "Denni", þá endar maður bara á útlenskum klámsíðum. Eða endar á gömlu síðunni minni, eða nafna míns Ólafssonar.


Fyrsta alvöru blogg .....lengi

Hef tilkynnt um flutning af www.simnet.is/steingrimur. Vonast til að fólk finni mig á endanum hérna. Í dag hvarf öll fjölskyldan mín og skildi mig eftir hérna fyrri vestan. Sæunn, Svava Rún og Elma Katrín flugu suður seinni partinn í dag. Svava er að fara í eftirskoðun eftir augnaðgerð sem hún fór í fyrir svolitlu síðan. Svo stekk ég norður til Akureyrar á föstudaginn.

Var í borginni síðustu helgi. Fundur á föstudeginum og svo var árshátíð á laugardeginum Ansi öflug hátíð, með stórum listamönnum og nóg af vökva og mat. Gaman að hitta gamla vinnufélaga. Skemmtilegt fannst mér að hitta Eyþór Bergmanns og Hauk Harðar, gamla æskufélaga. Við erum einmitt gamlir skátar og úr árgangi 1975 að vestan. Á sama augnabliki hittum við gamla vinkonu að austan, Guðrúnu Helgu, sem fór með okkur til Færeyja hérna um árið á skátamót. Spurði hún okkur svo frétta af jollaranum eins og hún kallaði hann. Átti hún þá við Jón Geir sem var með förinni. Hann var þekktur fyrir að jóðla á öllum stundum. Ég gat nú bara bent henni upp á svið, því Ampop hefði nýlokið við að spila.

Ingvar Valgeirs félagi minn, var með skemmtilegt gítarminningarblogg um daginn. Datt í hug að prufa að rifja upp gítarana mína eins og hann.

Marina: Fyrsti rafmagnsgítarinn sem ég keypti hét Marina. Hann var keyptur í einhverri verslun á laugarveginum, c.a árið 1988, sem var ekkert þekkt sem hljóðfærabúð. Kostaði 10þús kall man ég án tösku. Lét senda hann í póstkröfu heim, því ég var ekki með aur á mér. Þetta var svona stratocaster eftirlíking. Engan átti ég magnarann í einhvern tíma. Tengdi gítarinn bara við gamlan græjumagnara. Unnar Reynis keypti sér eins bassa stuttu seinna.
Yamaha FG 420A: Fyrsti kassgítarinn sem ég keypti. Stebbi Baldurs hafði keypt sér svona suttu áður, og ákvað bara að kaupa eins. Pantaður í póstkröfu úr Paul Bernburg á Rauðárstíg árið 1990.
Epiphone Les Paul: Svartur með gylltu hardware. Geðveikt fallegur rafmagnsgítar og sé mest eftir að hafa selt þennan grip. Keypti hann í Rín, sama ár og Whitesnake spiluðu í Reiðhöllinni, sem hefur verið árið 1991. Seldi Valda félaga mínum hann ásamt magnara. Valdi er í dag, bassaleikari í hljómsveitinni Reykjavík!. Valdi tók sig til og bólstraði eða teppalagði gítarinn. Ef einhver veit um hræið af honum í dag, langar mig í það.
Samick: Þetta var svona rauður blúsgítar. Ætli ég hafi ekki keypt hann, því hann var svipaður og Oasis notaði (keyptur 1996). Ágætis gítar, keypti hann óséðan. Hávarður keypti af mér gripinn
Saga Guitar Tele building Kit: Með fyrsta dótinu sem ég keypti á Ebay, árið 2004. Þetta var svona kit sem maður keypti pússaði, sprautaði og setti saman. Úr varð helvíti töff blásanséraður Telecaster eftirlíking. Þar sem ég fæ alltaf samviskubit yfir hljóðfærum sem rykfalla heima hjá mér, seldi ég Inga frænda mínum hann. Ingi notar hann vonandi í dag.
Martin Backpacker: Enn og aftur var farið á Ebay.com. Þetta er eitt sniðugasta hljóðfæri sem ég keypt. Það má segja að þetta sé spýta með 6 strengjum. Eins og nafnið segir, bakpokagítar. Fínn í ferðalagið. Keypti hann á Ebay árið sem ég átti stórafmæli, árið 2005. Á hann enn og mun ekki selja hann.
Garrison G-30E: Árið 2005 var gott gítarár. Og mikið að gera í trúbadorabisness. Langaði í góðan kassagítar með pickup. Síðan ég eignaðist hann, hef ég ekki fundið neinn betri kassagítar en minn. Kannski Garrison gítarinn hans Ingvars sé aðeins betri, enda mun dýrari.

Önnur strengjahljóðfæri sem hafa borist mér, er hægt að telja djammgítar sem ég keypti af Sverri Karli heitnum, sem ég fór með á Eldborgarhátíð 1992. Sá gítar fékk rigningu og rok.  Sprautaður aftur eftir það. Pússaður niður og bæsaður. Svo er einn gítar í minni umsjá sem dagaði uppi hjá mér, sem er antik. Lét gítarsmið laga hann.
Svo smíðaði ég balalaika í smíði í 10. bekk. Þetta er svona lítið rússneskt hljóðfæri. Svipað og mandólín að stærð.

Efast um að venjulegt fólk hafi haft gaman af þessu bloggi! En grunar að græju og gítaráhugamenn hafi áhuga.


Jæja!

Spurning hvort maður girði niðrum sig og fari að nota bara svona týpíska bloggsíðu í staðinn fyrir eitthvað simnet.is, þar sem ég nota blogspot.com, sem er ekki alltaf að virka.
Mér finnst viðmótið ágætt hérna svosem. Sjáum til hvað ég geri hérna. Þangað til næst!


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband