Fyrir ári síðan. Bar ég inn þetta orgel. Þetta var með því fyrsta sem ég kom með í íbúðina okkar í júlí í fyrra.
Sæunn var ekkert voðalega hrifin af þessu nýja stofustássi þá. Stelpurnar voru voðalega hrifnar samt. Þetta er fínasta Yamaha orgel. Ekki hugmynd hvað það er gamalt. Ég opnaði það um daginn og hreinsaði ansi mikið ryk úr því.
Það getur verið ansi gaman að stilla það á diskó takt og spila á það, eftir nokkra bjóra. Nú vantar mig pláss fyrir húsgögn í stofunni minni. Þetta orgel er því í boði á tónelskt heimili, ef einhver vill. Efra nótnaborðið er samt í smá lamasessi og eflaust þarf að spreyja kontakt spreyi á takkann sem stjórnar temopóinu.
Þeir sem hafa áhuga, sendið mér línu steingrimur@simnet.is . Ég skal hjálpa við að bera það niður af 3. hæð ef þörf er á.
Mæli svo með að sá sem eignast það læri þetta lag. Við sjáum myndband:
Athugasemdir
Ohh ég væri geðveikt til í þetta... Pabbi átti svona en ég veit ekkert hvað varð um það, verð bara að elta það uppi!
Æji, söfnunaráráttan að fara með mann- ég hef EKKERT að gera við þetta!
Ásta María (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 23:14
Ég væri til í þetta Yamaha orgel en hef ekkert pláss fyrir það, nema að ég búi það bara til. þá ætti ég Flott Yamaha orgel, Farfisa Professional og Roland RS-5 Synthesiser ekki amarlegt það og að sjálfsögðu Yamaha trommusett og Zildijan diska og allskonar auka drasl Shure hljóðnema, og eldgamlan RAM Pico 12:2 mixer.
Gummi Gunn. (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 19:17
Mig langar ekki mikið í orgelið - en ég væri til í að samnýta ferðina þegar þú berð það niður af þriðju hæð og fá ykkur til að bera píanó fyrir mig upp á þriðju hæð annarsstaðar... bara svona í leiðinni...
Hjördís Þráinsdóttir, 8.8.2008 kl. 09:05
Þetta er líklega 26-30 ára gamalt. Þessi týpa, eða allavega svipuð, var til sölu í Poul Bernburg kringum árið 1980. Svo breyttust þau í útliti.
Ingvar Valgeirsson, 10.8.2008 kl. 15:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.