Sumarfrí frí frí!

Er á 2. degi sumarfrís. Almenn leti hefur hrjáð okkur. Tókum rúnt um sunnanverða Vestfirði, á síðasta sunnudag. Keyrðum á Flókalund. Tókum stopp þar í hádegismat. Brunuðum svo í þokuna á Patró og Tálknafirði.
Sól og sumarylur hefur einkennt síðustu daga. Ég og Sæunn erum á golfnámskeiði þessa vikuna. Mig dauðlangar samt að fara eitthvað. Helst vildi ég eiga tjaldvagn eða fellihýsi til að bruna með eitthvað út í buskann. Hver vill kaupa með mér svoleiðis? Engin nýtni að eiga þetta einn.  Samt er ég með einhverja útþrá. Hver vill bjóða mér til Köben eða eitthvað? Hvað þá redda mér gistingu þar fyrir 4 manna fjölskyldu?? Er farinn út í sólina á Ísafirði. Matur hjá tengdó og golfnámskeið strax á eftir. Yfir og út!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjördís Þráinsdóttir

Mig langar að vera í fríi og ég væri alveg til í að eiga fellihýsi eða tjaldvagn... Maybe one day.

Get varla beðið eftir mánudeginum næsta, Noregur - here we come!

Hjördís Þráinsdóttir, 12.6.2007 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband